Hvurslaxs vitleysa er þetta eiginlega?
Klukkan
01.07.2008 13:15:28 / káið

Home Sweet Home..

Jæja komum heim á föstudaginn, þreytt eftir langt ferðalag. Þetta var alveg frábært...við lentum að sjálfsögðu í allsskonar ævintýrum...hehe...fyrst týndist ein taskan í Barcelona...fengum "lítin" bíl sem líktist sardínudós!!....ætluðum aldrei að finna húsnæðið...læstum okkur úti á svölum með Björgvin steinsofandi inni!! Tók tímana tvenna að komast inn...og kostaði okkur slatta að fá lásasmið!! :S Brunnum öll nema Aníta og Björgvin. Fengum ógeðslega íbúð í Barcelona þegar ráðstefnan var, full af allskonar skordýrum og viðbjóðinn er ekki hægt að lýsa hér,  tekið á það ráð að finna annað sem var hægara sagt en gert en tókst á endanum! Kvef læddist að stelpunum og Svenni fékk sólsting...úff !! Björgvin var yndislegur allan tíman - það var ein nótt sem hann svaf illa og þá var fyrsti jaxlinn að koma, svo komu hinir 3 án okkar vitundar!!!

Ég er einsog ég hafi borið á mig brúnkukrem blindandi...brún hér og þar og skjannahvít sumstaðar!! hehe....Evran rokkaði frá 118 uppí 136 sem setti strik í reikninginn...já visað er frekar feitt eftir ferðina...ís og 1/2 L af kók var bara á 2,50 sem gerðu ss rúman 300 kall fyrir varninginn!! Fljótt að koma !

Æ það var gott að koma heim, yndislegt ferska loftið - ferska vatnið - fiskurinn - mjólkin og bara ALLT.

Byrjaði að vinna í dag, sem er fínt - held samt að ég reyni að taka einhverjar langar helgar í frí í sumar og skella mér í útilegu! Elska það!


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.06.2008 07:28:25 / káið

Aquí venimos Espania!!

DAgurinn runnin upp -  seinni partinn í dag förum við í loftið og fljúgum til spánar. Björgvin var eitthvað að láta vita af sér í nótt, er enn í tannatöku, svo er hundurinn búin að vera eitthvað skrýtin, ælandi og vælandi, æ bara skrýtin. Ætla að biðja hana tengdó um að láta kíkja á hann. 

Fer með allan skaran minn í klippingu hér í bæ kl 9 - eigum eftir að gera hitt og þetta áður en lagt verður í ferðalag, ætlum okkur samt að vera komin snemma til að geta bara slappað af og fengið okkur að borða og svona. 

Erum pínu smeik að 3 vikur hafi kanski ekki verið besti kosturinn, sp um hvort þetta sé of langur tími....æ það kemur þá bara í ljós. Vonandi verður þetta bara fínt. 

Það er engin tölva með í för. Þannig að hér verður ekki bloggað á næstunni nema ég fái andan yfir mig á næsta net kaffi!! 

adios amigos!!

                                    AQUÍ VENIMOS ESPANIA!!! 

» 1 hafa sagt sína skoðun

07.06.2008 08:19:15 / káið

Rise and shine...!

Það skiptir Björgvin engu þó við séum komin í sumarfrí...hann bara vaknar á sínum tíma...var reyndar frekar pirraður í nótt, vissi að það yrði...hann var í eins árs skoðun/sprautun í gær. Svo er hann líka að taka endajaxlana!! Úff pínu erfitt...

Í kvöld er fyrsta Götu/grill partýið í Eikardal. Verður heima hjá H&K - fínn pallur hjá þeim og búið að tengja pottinn fyrir þá sem vilja....kanski það verði farið eftir nýjustu "bústaðartískunni" og farið nakin að neðan og fari að hlaupa nakin í kringum húsin !!!! ??? hahahaha  NEI ég vona að fólk verði skynsamlegt og haldi sér allavega í fötunum :S :S :S

Var með foreldrakaffi í gær eftir vinnu(kl 14) þar sem tvær drengir eru að hætta hjá mér og eru að fara á leikskóla, þetta var svaka fínt. Bakaði köku og allir mættu og sátu rólegir og spjölluðu saman, fékk ofsalega fallegar kveðjugjafir annarsvegar stóra englastyttu og kerti, og hinsvegar fékk ég 2 stk af góðri sólarvörn, rakakrem,handáburð og maskara. Já það held ég nú, mér finnst ég heppin og finnst leiðinlegt að þurfa að byrja uppá nýtt að kynnast öðru barni...öðrum foreldrum EN þetta er víst vinnan mín. 
 
Nenni ekki meiru...


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.06.2008 20:49:17 / káið

3 vinnudagar eftir!!

Yes! er að klára síðustu vinnuvikuna fyrir sumarfrí og það líka flotta fríið sem frúin er að fara í...úff 3 vikur á spáni, nánar tiltekið Salou sem er fyrir utan Barcelona :-) Við förum í loftið á mánudaginn - það er orðin mikill spenningur á heimilinum einsog má gera ráð fyrir. hehe...

Fórum í fyrstu útileguna um helgina á APavatn og þvílík snilld, vorum þar í miklum og góðum félagsskap og þegar mest var þá vorum við 30 börn og fullorðnir..+ 5 hundar :-) fengum rigningu á föstud, en svo kom góða veðrið á laugardaginn og varð enn betra á sunnudaginn. Elska að fara í útilegu í fellihýsinu mínu...það er bara ekki hægt að líkja þessu saman við tjald...bara ekki hægt.
Það var svo gott veður að við brunnum í framan...hehe og engin sólarvörn á liðið!! Eins gott að maður passi sig á spáni!!

jæja er bara svona að láta vita af mér...reikna ekkert frekar með fleiri blogg færslum fyrir frí og jafnvel spurning hvort ég hætti ekki bara með þetta...og skrifi bara í tölvu dagbók....

» 0 hafa sagt sína skoðun

26.05.2008 09:15:10 / káið

Frábær árangur!

Helgin liðin, Svenni steig á vigt og hann er komin í 98,6 kg....já það er sko frábær árangur,hefur ekki séð svona tölu í 8 ár!!! Hann er búin að vera rosalega duglegur. Svo stóð hann við orð sín og lét skeggið fjúka....sagði það að um leið og 100kg væru horfin af vigtinni þá myndi skeggið fá að fjúka! Skrýtið að sjá hann svoleiðis en það venst....finnst einsog það sé annar karlmaður á heimilinu...hehe hann hefur yngst um nokkur ár við þetta!!!
Fórum og horfðum á júró hjá pabba, Friðrik og Regína voru flott en úrslitin kanski ekki eins flott.
Héldum svo uppá eins árs afmælið hans Björgvins í gær, hann á afmæli í dag. Það var bara lítið og þægilegt. Hann fékk föt og leikföng - hann varð voða feimin þegar það var sungin afmælissöngurinn :-)
Skrýtið hvað tíminn er fljótur að líða, finnst svoooo ótrúlega stutt síðan ég var að eiga hann. Ég er svo þakklát fyrir hann - að hann sé heilbrigður og svona fallegur. Ég vissi alltaf að ég ætti að koma með barn nr 3 - og þegar ég fékk hann í fangið þá kom þessi tilfinning, að nú væri ég komin með heildina. Yndislegt Líf.
Læt þetta duga í bili. adijós! ;-)

» 1 hafa sagt sína skoðun

21.05.2008 12:43:35 / káið

Ár síðan ...

Litli prinsinn minn er bara farin að labba, algjört rassgat! Eða hann er farinn að labba einhver 10 skref í einu og stendur sjálfur upp og fer af stað. Hann er svo montin og móðirin horfir með aðdáunaraugum á hann og er að rifna úr stolti. Hann verður 1 árs á mánudaginn...vá hvað tíminn er fljótur að líða - við verðum með litla veislu að því tilefni á sunnudaginn. :-) Það er meira hvað maður getur endalaust elskað þessi börn sín. Ég er ofsalega þakklát fyrir að börnin mín eru heilbrigð...og tala nú ekki um falleg og skemmtileg!!!!! Gæti ekki verið heppnari! ;-)
 
Við ætlum í okkar fyrstu útilegu um mánaðarmótin, ótrúlegt hvað mig er farið að hlakka til. Alltaf svo skemmtileg stemmning í útilegum....trallatrallarííí!!
Svo helgina eftir það er götugrill hérna og á mánudeginum er svo ferðinni heitið uppá flugvöll.....og skella sér til spánar....dísuss allur tími er alltof fljótur að líða - skildi þetta fylgja aldrinum að finnast tíminn svona fljótur að líða??? Man sem barn fannst mér tíminn ekki líða. ;-) veit ekki hvort er betra!?

Já ég gleymi alltaf að minnast á það að Svenni er búin að ná gríðarlegum árangri!! vá - hann er vanur að kaupa XL skyrtur...nei hann keypti M fyrir ferminguna og buxur sem ég keypti á hann fyrir jól og hann NB kom ekki upp um sig, fer hann leikandi í. Ohhh þetta er stórkostlegt!! ég er svo stolt af honum. hann er búin að vera rosalega duglegur, borðar ekkert brauð,past,mjólkurvörur,sósur eða gos... er í rauninni bara á kjöti-fisk-kjúlla og salati og líður mjög vel.

Ég er líka í átaki, drekk núna 2-3 sjeika á dag, sleppi öllu brauði og pasta - gengur mjög vel, reyni að gera magaæfingar svo ég verði ekki með lafandi "pizzadeig" utan á mér á spáni. :S



» 0 hafa sagt sína skoðun

19.05.2008 13:45:47 / káið

Hef ekki nóg að gera!?

Það er svo magnað að þegar það er mikið að gera og mikið "stress" en samt ekki stress.. þá finnst mér voða gaman. Æ ég veit ekki hvað ég meina...jú ætli ég þurfi ekki bara að hafa nóg að gera til að mér líði vel. Núna er einhvern veginn allt búið að vera rólegt í viku og það er nóg fyrir mig,núna langar mig að fara að gera eitthvað!! ohh hvað maður er eitthvað skrýtin. Væri þess vegna til í smá aukavinnu ... kanski þarf ég bara að hafa nóg fyrir stafni framm að Barcelona..hehhe... fer að styttast í þá ferð - jiii hvað mig hlakkar til að geta legið á sundlaugarbakkanum og sólað mig :-) svo förum við að sjálfsögðu á Herbalife ráðstefnuna sem verður 20 júní!! Þá ætlum við líka að gista í Barcelona yfir þá helgi. Annars verðum við í Salou sem er 100 km frá borginni. Við verðum þarna með Laufey og Adam, HIlmari,Kollý,Daníel og Óla. Þetta verður án efa rosalega gaman og gott að breyta um umhverfi í smá tíma. Við komum svo heim þann 27.júní og þá erum við jafnvel að spá í að fara inní Þórsmörk, svo fer Aníta í handboltaferð til Svíðþjóðar þann 30 júní. Nóg að gera hjá henni, hún reiknaði að hún verður ss ekki á Íslandi í heilan mánuð þetta sumarið!! Hún er á fullu núna að safna sér fyrir ferðinni, gleymdist alveg í fermingarundirbúningnum... hún er að selja wc pappír - kaffi og eitthvað fleira, er búin að láta vita af sér hjá "mömmunum mínum" að hún geti passað, og er þegar komin með 2 job þar :-)
Hef svosem ekkert að segja í bloggi dagsins...svo ég hætti bara hér.


» 2 hafa sagt sína skoðun

15.05.2008 13:55:31 / káið

Gleymi blogginu

Já ég hef verið frekar upptekin undafarið og þar af leiðandi gleymt að blogga...ekki að það breyti neinu, þar sem ég held að engin lesi þetta blogg. En mér finnst gott að skutla hér inn öðru hvoru og það er fyrir öllu.
Það var mikill undirbúningur fyrir ferminguna og í raun var miklu meira gert hérna en átti að gera í upphafi, því á ég góðum vinum að þakka...sumir voru tregir við að fara til síns heima - hehehe...þetta var ofsalega gaman,hefði viljað geta verið meira með,en Björgvin litli var mjög lasin 10 dögum fyrir stóra daginn.

Svo kom loks dagurinn og hann rann svo vel í gegn, hér voru 70 gestir í mat og svo kökum og kaffi á eftir og allir mjög sáttir, ekkert of þröngt en ég hefði heldur ekkert viljað hafa mikið fleiri,þetta var alveg fínt.

Stelpan fékk fullt af fallegum gjöfum og kom það mér skemmtilega á óvart hvað fólk var að gefa henni, hún fékk meðal annars, línuskauta-náttföt-föt-málverk-3stk sléttujárn-skart-sæng og kodda-sængurföt-úr og margt fleira. Svo fékk hún mikinn pening sem verður sennilega mest allur færður inná bók þar sem hann fær að ávaxta sig eitthvað. Held að hún vilji samt kaupa sér síma og eitthvað meira og það er líka bara allt í lagi enda hennar peningar.

Gleymdi að segja að hún var ROSALEGA ánægð með herbergið sitt og rúmið...vá ég veit ekki hvert hún ætlaði - hún varð svo kát!!!

Nú er bara alvaran tekin við og það bíða reikningar og launalaus mánuður...úff...já ég er að fara í sumarfrí í júní og fæ ekkert borgað á meðan...en það hlýtur að reddast. ;-) 
 
læt þetta duga í bili.

» 5 hafa sagt sína skoðun

02.05.2008 08:44:28 / káið

Hér gerast hlutirnir!!

Hér er ótrúlega mikið búið að gerast á síðustu dögum, með ómetanlegri hjálp góðra vina. Ég á bara ekki orð til þeirra sem hafa hjálpað okkur. TAKK.
Já hér er búið að flísaleggja - fúga - komin innrétting á litla wc - hurðarnar eru komnar upp - komið í loftið í forstofu > erum byrjuð í lofti á stóra wc - bílskúrinn var nærri því skúraður hér í gær svo vel var tekið til í honum :-)  - og ekki síst....það sem var ekki á planinu .. það er komin rammi á arininn...þeas með arinhillu og alles!! ógissssilega töff svo marr sletti! OG þetta er hönnun sem kom ett kvöld þegar allir voru dauð þreyttir og búnir á því! Óli,Laufey,Eiður og Jóna Þúsund þakkir!!

það sem eftir er ekki svo mikið....ég þarf bara að vera dugleg í dag að taka til og þrífa :S

Björgvin fékk herpes veirusýkingu í munninn og er búin að vera mjög lasin, hann er með mjög háan hita og sefur lítið sem ekkert. Gáfum honum einhverja náttúru dropa í gær og svei mér þá ef barnið er ekki bara öllu skárra í dag en í gær. Er að reyna einsog ég get að sniðganga pensilín inntöku fyrir hann,vona að mér takist það.

Já einsog ég segi þá á ég endalaust góða að og í dag er ég bara þakklát.

» 0 hafa sagt sína skoðun

17.04.2008 10:19:20 / káið

Hvenær er ekki NÓG að gera??

Stundum á ég mjög erfitt með að koma mér af stað í að gera hluti sem þarf að gera, veit ekki hvað þetta kallast annað en leti!? Ég bara fæ verk í magan og mér fallast hendur...veit ekkert hvar er best að byrja og hvernig ég á að enda. Hér er margt sem er ógert og er búið að vera lengi...hefði kanski átt að hluta á pabba með að hafa GÓÐA fataskápa í öllum herbergjum!! hehehe...mig vantar sem sagt pláss þar sem ég get "falið" draslið mitt!!!  Mér finnst ég þurfa auka hendur og EXTRA orku til að klára þetta allt. Ég er samt alveg á því að ef ég væri ein í heilan dag án nokkurra afskipta eða áreitis þá myndi ég ná að klára þetta :-) já ég get alveg verið öflug en....ég þarf bara að vera ein. :S

Ég ætla að byrja á að undirbúa matinn fyrir ferminguna næstu helgi, það tekur sennilega alla helgina. Sumt af þessu er náttla ekki gert fyrr en daginn áður svo að það er líka ágætt að klára eitthvað. Hef fullt af fólki sem ætlar að hjálpa mér með það.
Kerti,sálmabókin og servíettu ákvarðanir verða teknar í dag.

Svenni klárar flísalögn í dag og þá er hægt að fúga á morgun. Í næstu viku verður þá sett í loftin,klárað rafmagnið og settar upp hurðarnar.
 
Svo bara kemur þessi ferming og fer....einsog jólin.....alveg sama hvort við erum búin að gera það sem við ætluðum okkur!  

jæja over and át. 



» 0 hafa sagt sína skoðun

11.04.2008 09:24:52 / káið

Allt að gerast!!

Það er allt að gerast og engin tími til að blogga!

Við skötuhjúin "hjónaleysin" áttum 10 ára sambúðarafmæli núna í vikunni...gerðum ekkert í tilefni dagsins nema knúsa hvort annað. Höfum verið að bíða eftir þessum degi og ætluðum aldeilis að gera okkur glaðan dag en....svona er þetta bara....það verður kanski gert næst bara...þá meina ég þegar við eigum 20 ára afmæli :S

Eldhúsið mitt er tilbúið :) við tókum okkur til og kláruðum þessi smáatriði í gær og VÁ þvílíkur munur!!! TAKK ÓLi. Eina sem þarf að gera þar er þá að pússa og bera á borðplötuna, get gert það í rólegheitum einhvern daginn.

Við munum klára að flísaleggja baðherbergin núna um helgina og þá er hægt að fara að skella í loftin þar inni og setja innréttinguna upp á litla baðinu.

Þá er bara að setja upp restina af hurðunum og þá erum við nokkuð góð fyrir ferminguna sem er eftir akkúrat mánuð. Já fyrir utan að taka herbergið hjá gellunni í gegn,..geri það bara 10 dögum fyrir fermingu...hlýtur að duga!

Það er bara tilhlökkun í ferminguna, kvíður ekki fyrir eða finn ekki fyrir miklu stressi, er alveg ákveðin í hvernig þetta verður þar sem unglingurinn hefur mjög ákveðnar skoðanir um hvernig hún vill hafa þetta allt - sem er frábært!! Hún fær að ráða þessu nánast öllu... ég leiði hana áfram með sumt en annars er þetta alveg hennar.

jæja þetta dugar víst lítið...farin að vinna....

» 2 hafa sagt sína skoðun

04.04.2008 22:54:55 / káið

Að vera dipló!?

Stundum er betra að þegja!!
Ohh já ég er svo ósátt útí eina persónu núna sem ég ætla svosem ekki að fara að nafngreina hérna en stundum þarf fólk aðeins að spá hvað það segir og við hvern. Þegar maður er foreldri þá finnur maður soldið mikið fyrir þessu, ef einhver segir eitthvað við barnið manns sem særir það þá getur maður orðið virkilega reiður!! Ég ss er mjööög reið en ætla mér samt að halda haus og gera hlutina einsog ég ætlaði mér í upphafi en kanski með smá breytingum .... svona til að vera "dipló" ekki það að mig langi það en stundum þarf að gera hluti sem manni langar ekki. Vá hvað er erfitt að fara ekki nánar útí þetta, jæja það verður að hafa það.

Hér er allt að gerast, Svenni ofurduglegi er búin að vera í garðavinnu hér úti í tvo daga. Erum með á leigu litla bobcat vél og ég sé hvað hann Svenni minn er alveg að fýla sig, alveg einsog hann sé kominn í sandkassann aftur 5 ára!! hehehe....

Fermingarundirbúningur er hafin á heimilinu, búið að kaupa dressið, kjól,ermar,leggings,skó,brjóstahaldara,eyrnalokka og hálsmen. Allt þetta kostaði hvorki meira né minna en þrjátíu kúlur!!! EN hún er ofsalega falleg í þessu og er að rifna úr monti! ;-)
Ætla að gera prufu af einum desertinum á morgun - en annars ætla ég að byrja að gera matinn í næstu viku og frysta. Svo fer að koma að því að loka og læsa herbergi Sólarinnar og gera það klárt fyrir stóra daginn!

"Kreppan" bankar á hurðina hér einsog á mörgum bæjum og ekki bætir úr skák að ég verð með 70þús lægri laun núna en síðustu mánaðarmót, það er vegna þess að eitt barnið er að hætta og fara á leikskóla. :( vonandi næ ég að fá annað barn inn fljótt og örugglega.
Mér finnst aðgerðir Trukkabílstjóra stórkostlegar, kanski af því ég finn ekki fyrir þessum töfum sem verða þegar þeir byrja en samt, loksins var eitthvað gert á þessu skeri í mótmælum....erum alveg þekkt fyrir að sitja heima á rassgatinu og kvarta og kveina yfir heimsins málum! Tek ofan fyrir þessu...hvort sem það skilar einhverju eða ekki.

hætt í bili, lov u gæs!

» 0 hafa sagt sína skoðun

24.03.2008 23:36:39 / káið

Úff..19 ár

Í gær eru 19 ár síðan ég fermdist!!!! óboy-óboy :S getur þetta staðist...finnst ég einmitt svoooooo ung og þetta er einsog það hafi gerst í gær!! hehe.... Þetta sumsé rifjaðist upp fyrir mér þegar ég fann sálmabókina mína með áletruðum fermingardeginum mínum á. Fékk algjört FLASH back :-) skemmtilegt að rifja þetta upp...fermingarmyndin mín er algjör horror, nýkomin úr tannaðgerð ( mamma var að nýta ferðina til reykjavíkur!!!!) ég svo mygluð eitthvað og deyfingin ennþá í mér - slef för útá kinnar og svona skemmtilegt.. klæðnaður hrikalega flottur hvítt pils með svörtu tjulli og hvít skyrta og svartur jakki með axlarpúðum!!! hahahahha.....ótrúlega smekklegt allt saman!!

Fór í flotta fermingarveislu í dag hjá Kareni Ósk hennar Gunnu vinkonu, þar voru saman komnir einir 130 gestir og átu einsog þeir gátu af þvílíkum veitingum, grillað lambafille og kjúllalæri og meðlæti, svo var í eftirrétt...kökur og kaffi, VÁ ég var að springa þegar ég labbaði útí bíl! ÚFF.
Daman fékk fullt af flottum gjöfum og að sjálfsögðu slatta af "Seðlum" eða einsog fermingarbarnið orðaði það þegar hún var búin að taka upp pakkana, ég á sko peningabúnkan eftir!! (þá átti hún við að hún ætti eftiir að lesa kortin!) :S

Það styttist óðum í að Aníta komist í fullorðin manna tölu og er komin tilhlökkun/kvíði í suma hér á bæ.... nei nei við gerum þetta að okkar alkunnu snilld og mun hún eiga dag sem verður henni eftirminnilegur og skemmtilegur ! (ætlum að stríða henni aaaaaðeins)

Hef þetta fermingarblogg ekki lengra...gaman væri að vita hversu langt er síðan ÞÚ fermdist!!??

» 5 hafa sagt sína skoðun

21.03.2008 09:51:54 / káið

Hér á bæ eru

Veikindi...úff Þetta ætlar engan endi að taka...vöknuðum að morgni miðvikudags og þá var drengurinn komn með augnvírusinn aftur!! Lét foreldrana vita en allir mættu... :S svo í gær var kvefið farið að versna og núna í morgun fékk ég nokkrar ælugusur yfir mig..NÆS! Vonandi er þetta bara svona dagsælupest..ég er alveg komin með nóg af Þessum pestum.

Var vöknuð um 06 í morgun og rosalega er fallegt gluggaveður hér á suðurnesjum, hér er skítkalt en bjart og fallegt. Það er alltaf verið að spyrja mig hvort ég sé ánægð hérna og svarið er einfalt, JÁ. Ég er ekki þessi borgartýpa...finnst þessi stærð fín, íbúatalan er komin í 13.500 !! Það verður ekki langt í að þetta sveitarfélag verður of stórt fyrir mig!! hehe....við erum líka það langt frá "miðbænum" að mér líður einsog ég búi í sveit..það er æði! Elska þessi rólegheit, og annar kostur við þetta er að ég veit alltaf þegar von er á gestum...fólk keyrir ekki alla þessa leið án þess að ath hvort einhver sé heima. :-)

Hitti Gunnu vinkonu í gær, hún er á "fullu"(eða þannig) í fermingarundirbúning, stelpan mun fermast á mánudaginn. Nei hún Gunna mín er sko alveg slök með þetta allt sem er frábært! Ég ætla að taka hana til fyrirmyndar, ferming á þessu heimili er nú ekki fyrr en 11 maí, en það styttist óðum.
Hlakka mest til að taka herbergið hennar Sólarskutlu í gegn. 
Verð að fara að drífa mig í að senda boðskortin...hmmm...betra að gera þau fyrst! 

Er með snilldarhugmynd í kollinum og er búin að leggja hana fyrir kallinn og fékk rosalega góð viðbrögð hjá honum :-) hlakka til að framkvæma hana - vonandi verður það bara sem allra fyrst. ;-)

þetta er komið nóg í bili.

» 1 hafa sagt sína skoðun

17.03.2008 10:59:15 / káið

Skottan 9 ára!

Alexandra varð 9 ára í gær,16 mars. Hélt hér mikla veislu fyrir fjölskyldu og vini...aldrei þessu vant mættu allir sem voru boðnir, nokkrir höfðu afboðað sig og var það aðallega minn hluti :( pabbi og Imma eru í Japan..gild ástæða og svo bræður mínir,annar var í skólanum og hinn fyrir norðan.

Svo verður krakkaafmælið hér á miðvikudaginn...þá held ég að verði um 20 krakkar úff - spurning um að láta sig hverfa á meðan!!??

Ein góð vinkona mín mætti hér í fyrsta sinn í gær...þótti vænt um að hún skildi koma....   já já þær eru enn að koma...en enn eiga nokkrar eftir að láta sjá sig og ég sem er búin að búa hérna síðan í október!!! Skömm að þessu!!

Það er yndislegt að vita til þess að þessq vinnuviku eru bara 3 vinnudagar og í næstu eru bara 4 hehe...jejejeje... nú styttist í að Svenni fari aftur í feðraorlof og þá verður heldur betur tekið á því hérna heima! tímin er svo fljótur að líða og alltaf verður styttra og styttra í að unglingurinn muni staðfesta trú sína og komast í "fullorðinmannatölu"

Læt þetta duga í bili.

» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 19
Dagsetning
9. febrúar 2012
Heimsóknir
Í dag:  36  Alls: 43432